21.10.2008 | 01:02
Hmmm....
Jahá. Eitthvað var hún djúp þessi lægð sem gekk yfir landið síðustu daga, dró mig allavega frá tölvu og tjáningu. En hér er geðveila húsfrúin mætt aftur og langar mikið að bulla yfir landann en ég held að ráðamenn sjái um það.
Heyrði sniðuga hugmynd frá góðum manni vestur á fjörðum, lausn á vanda vorrar þjóðar, er kannski ekki nógu vel inni öllum þessum kreppupakkaveseni en fannst þetta engu að síður góð hugmynd, sameinast frændum okkar og nágrönnum, Noregi. Ég spyr allavega sjálfa mig afhverju þeir eru ekki í ESB, hef aldrei haft fullkominn frið yfir þeirri inngöngu. Ok, pólitík er ekki mín sterka hlið en mér er sko laaaangt í frá sama hvað verður um mitt ástkæra land í framtíðinni, sérstaklega þar sem börnin mín taka við þessu öllu saman, hef samt ALLA trú á því að við getum byggt okkur betur uppúr rústunum, með reynslu, von og sameiningu í farteskinu, ALLIR jafn mikils metnir.
Já.... þetta er nú kannski orðið fínt hjá mér á þessum nótum, ætla ekkert að fara að láta heyrast of hátt í tómri tunnu, margir mun betur að sér í þessum málum sem ræða þetta hér í bloggheimum.
Var boðið óvænt á sýningu á laugardaginn var, (takk Stebba og frænkur), Bítl á Höfn. Hafði óvenjulega gaman af þessu þar sem ég hef nú frekar tekið Rollings Stones fram yfir Bítlana, virkilega vel gert og skemmtilegt hjá þeim í Hornfirska skemmtifélaginu, takk innilega fyrir mig Mamma, þú verður að sjá þetta.
Geðveila húsfrúin kveður í bili og biður Guð að blessa ykkur öll þarna úti á kreppuklakanum
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl frænka, gott að þú ert komin í samband. Kíki á þig öðru hvoru en vildi bara láta vita af mér núna. Ástarkveðjur til allra
Höfuðið (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 09:28
Við verðum bara að vera bjartsýn (segir sú svartsýna)....æi ég reyni bara að loka á allt þetta krepputal og vona bara allt það besta.
Já það væri gaman að sjá þetta Bítl.
Knús
Svanhildur Karlsdóttir, 21.10.2008 kl. 10:14
Sammála, Bítlið var skemmtilegt
Knús
Anita Sóley (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 13:26
Aníta. Langaði bara að þakka þér hvað þú ert dugleg að kíkja á mig, þú ert líka velkomin að kíkja til mín Risa knús á þig og hafðu það sem best
Helga Rós Sveinsdóttir, 21.10.2008 kl. 23:57
Slæm hugmynd Helga. Það hefur ekkert gott komið frá Noregi, og 90% af mörlandanum eru undan Engilsaxneskum þrælum er Nojararnir neyddu með sér norður á skerið til að vinna verkin sín.
En eigðu góðan dag.
Runólfur Jónatan Hauksson, 22.10.2008 kl. 06:33
Helga mín, ég er alltaf á leiðinni
Reyni að kíkja sem fyrst
Knús
Anita Sóley (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 08:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.