21.1.2009 | 09:22
Vöknuð til lífsins/ársins ?
Góðan dag og gleðilegt ár ! (hemm, hemm þó fyrr hefði verið)
Það hefur ekki verið mikill bloggfílingur í mér í soldið laaaangan tíma, tjáningin frekar frosin, dofin eða týnd, já eða ótal aðrar ástæður.
Átti mjög afslappandi og skemmtileg jól með fjölskyldu og vinum, nýju ári var fagnað með góðum félagsskap, mat, mat (stamaði ekki sko) og tæknivæddum "partý"leikjum á náttfötunum.
Er að reyna að koma mér í gírinn (eins og alltaf) og taka nýja árið með krafti, nýjum hugmyndum, hugarfari og með von um kraftaverk í litla landinu sem ég hef mikla trú á og er stolt af sem slíku ef ég horfi framhjá spillingunni og græðginni.
En já..... kannski er ég vöknuð almennilega núna, til að takast á við hlutina eins og þeir eru, sprengja sápukúluna 'and smell the coffee' eða allavega til að blogga meira.
Guð veri með ykkur kæra þjóð, veiti ykkur vernd og visku og ég bið Hann síðast en ekki síst um kraftaverk í samvisku þeirra sem virkilega þurfa 'wake up call'.
Góðar stundir......
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Knús
Svanhildur Karlsdóttir, 22.1.2009 kl. 00:21
Flott 1 færsla á nýju ári
og til hamingju með prinsessuna þína snúllan mín
knúsí knús


Dagbjört Gerður Magnúsdóttir, 22.1.2009 kl. 00:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.