7.2.2009 | 23:31
Iss...
Þetta er nú meira "letibloggið" hjá mér, er varla að nenna þessu en langar þó, hvað þýðir það ?
Ætla nú samt að hripa eitthvað niður hér ásamt því að kveðja góðan bloggara sem hefur hætt sínu bloggi, bless "irg-ið" mitt, það var gaman að fá að fylgjast með þér.
'But life goes on' segir víst einhvers staðar, ég er alltaf að fara að reyna að taka mig á að blogga meir, hreyfa mig meir, biðja meir, hugsa meir, borða rétt og bla bla, það sem allir eiga víst að gera sér til hagsbóta, morgundagurinn hljómar bara alltof mikið sem betri tími til að byrja.
En já , það þýðir víst lítið einhver vettlingatök á tilverunni, það verður bara að finna sjálfsagann, hætta þessu væli og kýla á það.
En ég verð nú samt að kvarta aðeins.....
í gær, föstudaginn 6.feb varð ég fyrir því "skemmtilega" atviki að misstíga mig, ARG ! Það var ótrúlegt hvað þaut í gegnum hausinn á mér í sársaukabylgjunum, t.d. "oh nú kemst ég ekki í búðina með mömmu", "urrrg, ég sem ætlaði loks að komast af stað í ræktina eftir helgi", "úps, vonandi sá þetta enginn" eða "uuuu...ætli ég verði ekki að láta lækni kíkja á þetta".
Jú jæja, til doxa fór ég EN sko.... ég hringdi og spurði hvort ég væri nokkuð að trufla mikið (bara ef læknirinn væri kannski að sinna einhverju alvarlegu þar sem þetta var nú bara eitthvert klaufalegt ökklamein hjá mér) nei svo var nú ekki EN það var víst ekki rétti doxinn sem var með vaktsímann, hann væri að reyna að koma honum á réttann lækni sem var ókominn, kæmi eftir klukkutíma eða svo, þannig að ég ætti að hringja aftur klukkan 18:00 eða einum og hálfum tíma seinna.
HALLÓ !! Hvað ef ég hefði verið að fá hjartaáfall ? "Uuu hringdu þegar næsti læknir kemur á vakt, ég er að fara heim og fá mér möffins" ? Daaaaaaaa, hann sagði mér ekki einu sinni að leggja kalt á fótinn á meðan ég biði heldur spurði ég hvort það væri ekki betra að gera það, svona til að draga úr bólgu. VÁ ! Hvað er málið með lækna hér á þessu landshorni ?!
Niðurstöður hjá doxa fyrir rest............... rifið liðband og blæðing inná lið, takk fyrir og búhúú
Þá er ég búin að kvarta í bili, Dottinn blessi ykkur kæra þjóð og aðrir nærstaddir tataaa....
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.